Aðalfundur Fimleikadeildar Umf.Selfoss, var haldinn 7.mars sl. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, var farið yfir rekstur deildarinnar á sl. ári og fjárhagsáætlun ársins 2023 samþykkt. Starf deildarinnar var blómlegt á sl. ári eftir að loks var hægt að stunda æfingar og keppni af kappi eftir Covid lokanir. Breyting varð á stjórn deildarinnar og lét Ingibjörg Garðarsdóttir af embætti formanns eftir átta ára formennskutíð. Ný stjórn deildarinnar var kosin og hana skipa:
Gunnar Bjarki Rúnarsson, formaður.
Ásdís Elvarsdóttir, gjaldkeri.
Gerður Sif Skúladóttir, ritari.
Andrea Ýr Grímsdóttir, meðstjórnandi.
Berglind Elíasdóttir, meðstjórnandi.
Birna Dögg Fox Björnsdóttir, meðstjórnandi.
Ellen Mjöll Magnúsdóttir Hlíðberg, meðstjórnandi.