Unglingamót HSK í sundi fór fram í Sundhöll Selfoss sunnudaginn 9. nóvember s.l. Mótið hefur verið haldið árlega í 41 ár, en fyrsta mótið var haldið árið 1973.
Fram kemur í frétt á heimasíðu HSK að Dímon vann stigakeppni mótsins annað árið í röð. Dímon hlaut 90 stig, Selfoss var í öðru sæti með 87 stig og Hamar í þriðja sæti með 44 stig. Að þessu sinni komu keppendur mótsins frá félögunum þremur, alls 53 keppendur þar af 32 sem voru 10 ára og yngri og voru stungurnar 124.
Björk Cagatin, Hamri í Hveragerði fékk viðurkenningu fyrir mestu bætingu milli ára fyrir 50 m bringusund. Tími hennar árið 2013 var 1:31,27 en í ár 1:05,22 mín. Bætingin var því 26,05 sek milli ára.
Sundnefnd HSK vildi koma á framfæri þakklæti til starfsfólks Sundhallar Selfoss fyrir góðar móttökur.
Hér að neðan er getið um verðlaunahafa í flokkum 11 – 14 ára. 10 ára og yngri fengu allir jafna viðurkenningu. Heildarúrslit og fleiri myndir eru á heimasíðu HSK.
100 m skriðsund 13-14 ára stúlkna
100 m skriðsund 13-14 ára drengja
50 m bringusund 11-12 ára stúlkna
50 m bringusund 11-12 ára drengja
100 m baksund 13-14 ára stúlkna
100 m baksund 13-14 ára drengja
50 m skriðsund 11-12 ára stúlkna
50 m skriðsund 11-12 ára drengja
50 m baksund 11-12 ára stúlkna
50 m baksund 11-12 ára drengja
100 m bringusund 13-14 ára stúlkna
100 m bringusund 13-14 ára drengja
50 m flugsund 11-12 ára stúlkna
---
Sara Ægisdóttir, Thelma Ína Magnúsdóttir og Birgitta Ósk Hlöðversdóttir unnu þrefaldan sigur í 50 metra skriðsundi og baksundi.
Ljósmynd af vef HSK.