Ari Sverrir Magnússon framlengdi á dögunum við Selfoss til tveggja ára. Ari Sverrir lék með U-liði og 3. flokki Selfoss síðasta vetur ásamt því að taka sín fyrstu skref með meistaraflokki. Hann kláraði svo veturinn á því að útskrifast úr Handboltaakademíu Selfoss. Ungur og efnilegur leikmaður sem spennandi verður að fylgjast með í vetur.
Mynd: Ari Sverrir Magnússon á heimavelli í Hleðsluhöllinni.
Umf. Selfoss / ÁÞG