Arnar Freyr Ólafsson úr júdódeild Selfoss og varaformaður JSÍ tók 1. dan próf 6. mars síðastliðinn og stóðst það með glæsibrag. Uke hjá honum var sonur hans Hrafn Arnarsson (t.v. á myndinni).
Til hamingju með nýju gráðuna. Vel að þessu kominn og enn einn svartbeltingur hjá félaginu.