Hin ungi og efnilegi Arnór Logi Hákonarson hefur framlengt samning sinn við Selfoss. Arnór, sem er 18 ára gamall, er leikstjórnandi og tók sín fyrstu skref með meistaraflokk í vetur. Hann hefur einnig verið lykilmaður í ungmennaliði Selfoss sem komst upp í Grill 66 deild karla í vetur. Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að ungir og efnilegir leikmenn haldi áfram að vaxa og dafna í Hleðsluhöllinni.
---
Mynd: Umf. Selfoss / ÁÞG