Bragi ársrit Umf. Selfoss aðgengilegt á heimasíðunni

Heilar ellefu útgáfur af Braga, ársriti Umf. Selfoss, eru nú aðgengilegar á heimasíðu félagsins.

Þar má finna allar útgáfur frá árinu 2015 og ættu félagsmenn og aðrir áhugasamir því að hafa nóg að lesa um helgina. Bragi hefur að geyma fjölbreytt efni úr starfi félagsins, viðtöl, frásagnir, myndir og yfirlit yfir það öfluga starf sem unnið hefur verið innan Umf. Selfoss undanfarin ár.

Til að nálgast ársritin þarf að smella á „Um félagið“ efst í hægra horninu á heimasíðunni. Undir „Annað“ birtist síðan „Bragi ársrit Umf. Selfoss“.

Ef síðan er skoðuð í síma þarf að smella á strikin þrjú efst í hægra horninu, ýta á örina við „Um félagið“, síðan á örina við „Annað“ og þar birtist „Bragi ársrit Umf. Selfoss“.

Einnig er hægt að smella hér til að fara beint inn á svæðið

Góðar stundir