Elín Krista Sigurðardóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára. Elín, sem er örvhent skytta, er aðeins 19 ára gömul og mjög efnileg. Hún var lykilleikmaður í liði meistaraflokks kvenna í vetur, sem var aðeins hársbreidd frá því að komast upp úr Grill 66 deildinni. Handknattleiksdeildin fagnar þessum tíðindum, en það verður spennandi að fylgjast með meistaraflokk kvenna í vetur.
---
Mynd: Elín Krista Sigurðardóttir
Umf. Selfoss / ÁÞG