Frábæru tímabili strákanna í Selfoss U lauk í 2. deild karla í síðustu viku. Strákarnir léku á alls oddi í Sethöllinni gegn ÍH og sigruðu Hafnfirðingana með 15 mörkum, 41-26.
Selfoss U hefur eins og áður segir lokið öllum leikjum sínum, þeir unnu 16 og töpuðu tveimur, meðal leikur liðsins endaði með 39-30. Það er því óhætt að segja að skemmtikraftarnir leiki leiftrandi hraðann handbolta.
Við óskum liðinu til hamingju með flottan vetur og deildarmeistaratitilinn.