Örvhenti hornamaðurinn Eva Lind Tyrfingsdóttir hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Selfoss.
Eva Lind er sextán ára gömul en hefur, þrátt fyrir ungan aldur, leikið stórt hlutverk í meistaraflokki í vetur. Hún hefur einnig verið lykilleikmaður í yngri landsliðum Íslands og í 3. flokki Selfoss undanfarin ár.
Handknattleiksdeildin fagnar þessum nýja samningi og erum við spennt að sjá Evu Lind í vínrauðu áfram næstu árin.