Fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocross í Ólafsvík

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocross var haldið í Ólafsvík þann 14. júní síðastliðinn á vegum Motocrossklúbbs Snæfellsbæjar. Rúmlega 50 keppendur voru skráðir til leiks. Brautin í Ólafsvík er bæði krefjandi sandbraut og reynir hún vel á keppendur og var hörkukeppni flestum moto-um dagsins. Iðkenndur UMFS Alexander Adam og Eric Máni áttu frábæran dag. En Alexander Adam sigraði MX1 flokkin eftir hörkubáráttu um fyrsta sætið við Mána Freyr Pétursson, Eric Máni sigraði svo MX2. Næsta umferð Íslandsmótsins fer svo fram á Akranesi þann 28.júní næstkomandi.

Hér má sjá úrslit dagsins.

MX1 flokkur:
Alexander Adam Kuc
Máni Freyr Pétursson
Ingvar Sverrir Einarsson

MX2 flokkur:
Eric Máni Guðmundsson
Alex Þór Einarsson
Sindri Már Bergmundsson

Kvennaflokkur (opin flokkur):
Karen Arnardóttir
Eva Karen Jóhannsdóttir
Kristín Ágústa Axelsdóttir

Unglingaflokkur (aldur 14-18 ára, 144-125cc tvígengis):
Andri Berg Jóhannsson
Arnór Elí Vignisson
Máni Bergmundsson

MX2 - Unglinga (aldur 14-18 ára, 250cc fjórgengis):
Sigurður Bjarnason
Tristan Berg Arason
Númi Möller Pétursson

85 cc flokkur (aldur 12-14 ára):
Ísmael Ísak Michaelsson
Olivier Cegielko
Halldór Sverrir Einarsson

65 cc flokkur (aldur 10-12 ára):
Máni Mjölnir Guðbjartsson
Viktor Ares Eiríksson
Gabríel Leví Ármannsson