Guðmundur Steindórsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.
Guðmundur er vinstri skytta og öflugur varnarjaxl sem var hluti af stórskemmtilegu U-lið Selfyssinga í vetur. Á lokahófi 3. flokks og Akademíunnar var hann valinn varnarmaður ársins í 3. flokk ásamt því að útskrifast úr Handknattleiksakademíu Selfoss.
Það er ljóst að við munum fá að sjá þennan spennandi leikmann stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki í vetur.