Mánudaginn 1. september verður Jako með hausttilboð fyrir félagsfólk Umf. Selfoss í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19.
Það verður boðið upp á frábær hausttilboð á keppnistreyjum Umf. Selfoss, félagsgalla, æfingabúnaði, hlifðarfatnaði og fleiri vörum sem hægt verður að kaupa fyrir gott verð. Vinsamlegast athugið að tilboðin gilda einungis þennan eina dag.
Fatnaður verður afhentur í Tíbrá fyrir lok september.
Öll velkomin!
