Markmaðurinn Henriette Østergaard framlengdi samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss á dögunum. Henriette, sem er tvítug, kom í fyrra til Selfoss frá Elitehåndbold Aalborg sem er félag í efstu deild í dönskum kvennahandbolta. Hún hefur leikið lykilhlutverk í meistaraflokk kvenna í vetur og var með yfir 40% markvörslu að meðaltali í vetur.
Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að Henriette skuli velja áfram að vera hér á Selfossi.
---
Mynd: Umf. Selfoss / ÁÞG