Lið HSK/Selfoss Íslandsmeistarar í flokki 15-22 ára
Lið HSK/Selfoss sigraði glæsilega á Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem haldið var í Reykjavík helgina 20-22. Júní sl. Lið HSK/Selfoss hlaut 423 stig en lið ÍR varð í öðru sæti með 372,5stig. Piltar 16-17 ára, piltar 18-19 ára stúlkur 15 ára og stúlkur 18-19 ára unnu öll sína flokka. Sannarlega glæsilegur árangur hjá okkar fólki. Félagar í frjálsíþróttadeild Selfoss unnu glæsilega sigra á mótinu. Anna Metta Óskarsdóttir (15 ára flokkur) náði þeim glæsilega árangri að verða sexfaldur Íslandsmeistari auk þess sem hún setti mótsmet í þrístökki með því að stökkva 11,53m og bæta í leiðinni HSK met Evu Maríu Baldursdóttur frá árinu 2017 um 11 cm. Kristján Kári Ólafsson (16-17 ára flokkur) bætti eigið HSK met í sleggjukasti um 3,56m er hann kastaði sleggjunni 51,36m og sigraði. Þórhildur Sara Jónasdóttir og Ísold Assa Guðmunsdóttir náðu þeim frábæra árangri að verða þrefaldir Íslandsmeistarar og Hjálmar Vilhelm Rúnarsson varð tvöfaldur Íslandsmeistari auk þess sem hann náði þeim frábæra árangri að kasta kringlunni yfir 50m í fyrsta sinn.
Félagar frjálsíþróttadeildar Selfoss unnu til 19 Íslandsmeistaratitla auk þess sem félagar deildarinnar unnu til fjölda silfur- og bronsverðlauna
15 ÁRA FLOKKUR:
Anna Metta Óskarsdóttir: hástökk 1.sæti 1,57m, 300m hlaup 1.sæti 45,11sek, langstökk 1.sæti 5,16m, þrístökk 1.sæti 11,53m, stangarstökk 1.sæti 2,50m, spjótkast 1.sæti 34,19m, 80m grind 2.sæti 13,26m, 300m grind 2.sæti 48,85sek, 800m hlaup 2.-3.sæti 2:55,47 mín,80m hlaup 3.sæti 11,40 sek og 4x100m boðhlaup (16-17 ára) 2.sæti 54,33 sek.
Adda Sóley Sæland: sleggjukast 1.sæti 38,79m, kringlukast 3.sæti 26,06m, kúluvarp 3.sæti 9.54m, 4x100m boðhlaup (16-17 ára) 2.sæti 54,33 sek og 4x400m (blandað boðhlaup 20-22 ára) 3.sæti 4:05,48 mín.
Kári Sigurbjörn Tómasson: kringlukast 2.sæti 33,77m og spjótkast 2.sæti 30,48m
Stormur Leó Guðmundsson: stangarstökk 2.sæti 1,90m
16-17 ÁRA FLOKKUR:
Hugrún Birna Hjaltadóttir: 400m grindahlaup 1.sæti 1:13,21m, langstökk 3.sæti 5,06m ,4x100m boðhlaup 2.sæti 54,33 sek og 4x400m (blandað boðhlaup 20-22 ára) 3.sæti 4:05,48mín
Bryndís Embla Einarsdóttir: spjótkast 1.sæti 42,52m, kringlukast 3.sæti 30,30m og sleggjukast 3.sæti 40,24m
Arndís Eva Vigfúsdóttir: kringlukast 2.sæti 30,39m, kúluvarp 3.sæti 11,53m og 4x100m boðhlaup (18-19 ára) 1.sæti 56,63 sek.
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson: spjótkast 1.sæti 54,42m, kringlukast 1.sæti 50,63m og kúluvarp 2.sæti 14,98m
Kristján Kári Ólafsson: sleggjukast 1.sæti 51,36m og 4x100m boðhlaup 3.sæti 49,62 sek
Vésteinn Loftsson: Kringlukast 2.sæti 47,16m, spjótkast 3.sæti 35,24m og 4x100m boðhlaup 3.sæti 49,62 sek
18-19 ÁRA FLOKKUR
Þórhildur Sara Jónasdóttir: 800m hlaup 1.sæti 2:40,02mín, 400m grind 1.sæti 1:15,80 mín og 4x100m boðhlaup 1.sæti 56,63 sek.
Ísold Assa Guðmundsdóttir: stangarstökk 1.sæti 2,50m, kringlukast 1.sæti 31,02m, 4x100m boðhlaup 1.sæti 56,63 sek og hástökk 2.sæti 1,59m
Dagmar Sif Morthens: 4x100m boðhlaup 1.sæti 56,63 sek og spjótkast 2.sæti 34,51m
Hanna Dóra Höskuldsdóttir: sleggjukast 2.sæti 32,90m, kringlukast 2.sæti 23,83m og kúluvarp 3.sæti 10,26m.
Daníel Smári Björnsson: sleggjukast 1.sæti 20,33m, langstökk 2.sæti 5,70m, þrístökk 2.sæti 11,22m, 400m grindahlaup 3.sæti 1:11,93 mín, stangarstökk 3.sæti 2,30m, kúluvarp 3.sæti 9,48m, spjótkast 3.sæti 28,55m, 4x100m boðhlaup (20-22 ára) 3.sæti 47,08mín og 4x400m (blandað boðhlaup 20-22 ára) 3.sæti 4:05,48mín.
Daníel Breki Elvarsson: spjótkast 1.sæti 48,61m, kúluvarp 2.sæti 10,71m, kringlukast 2.sæti 29,24m og 4x100m boðhlaup (20-22 ára) 3.sæti 47,08mín.
Þorvaldur Gauti Hafsteinsson: 800m hlaup 1.sæti 2:03,75 mín og 4x100m boðhlaup (20-22 ára) 3.sæti 47,08mín.

Anna Metta Óskarsdóttir varð sexfaldur Íslandsmeistari auk þess sem hún setti mótsmet og HSK met

Kristján Kári Ólafsson varð Íslandsmeistari í sleggjukasti og setti enn eitt HSK metið á þessu sumri

Daníel Smári Björnsson stóð sig vel um helgina og hann náði 9x á verðlaunapall

Stormur Leó Guðmundsson náði á verðlaunapall í stangarstökki

Ísold Assa Guðmundsdóttir stóð sig vel um helgina og varð þrefaldur Íslandsmeistari

Hugrún Birna Hjaltadóttir Íslandsmeistari í 400m grindahlaupi

Þórhildur Sara Jónasdóttir varð þrefaldur Íslandsmeistari um helgina

Arndís Eva Vigfúsdóttir vann alla málmana, gull, silfur og brons um helgina

Bronssveit HSK/Selfoss í blönduðu boðhlaupi í flokki 20-22 ára. Frá vinstri eru Daníel Smári, Adda Sóley, Hugrún Birna og Ívar Ylur.