Inga Dís Axelsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss.
Inga Dís er fjölhæfur leikmaður, jafnt í vörn og sókn sem hefur bætt sig mikið undanfarin misseri. Hún er á átjánda aldursári og hefur verið hluti af meistaraflokki undanfarin tvö tímabil. Þá hefur hún einnig leikið lykilhlutverk í 3.flokki undanfarin ár.
Handknattleiksdeild Selfoss er gríðarlega ánægð með undirritunina og erum við spennt að sjá Ingu Dís halda áfram að vaxa í vínrauðu treyjunni næstu árin.