Jónas Karl Gunnlaugsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.
Jónas er skemmtilegur miðjumaður, snöggur á fótunum og óhræddur. Þessi ungi Selfyssingur lék stórt hlutverk með U-liði Selfoss í vetur þar sem hann skoraði 61 mark í 16 leikjum ásamt því að koma aðeins inn í meistaraflokk.
Í vetur mun Jónas Karl stíga sin fyrstu alvöru spor með meistaraflokki og óhætt segja að það verði spennandi að fá að fylgjast með.