Knattspyrnudeild Umf.Selfoss auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra. Við leitum að drífandi stjórnanda sem mun ásamt öflugum hópi starfsfólks og sjálfboðaliða, tryggja markvissa og metnaðarfulla starfsemi deildarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á leiðtogahæfileika og metnað. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Umf.Selfoss ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og heyrir beint undir stjórn Knattspyrnudeildar Umf.Selfoss. Starfshlutfall er 100% og er ráðning ótímabundin.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2024. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerðer grein fyrir áhuga á starfinu og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
https://alfred.is/starf/framkvaemdastjori-knattspyrnudeildar-umf-selfoss
Nánari upplýsingar veitir Leó Árnason, formaður Knattspyrnudeildar Umf.Selfoss (leo@sigtun.is), og Atli Marel Vokes, gjaldkeri Knattspyrnudeildar Umf.Selfoss (amvokes@gmail.com)