Magnús Tryggvi stóð sig frábærlega, uppskar fjölda verðlauna og stórbætti sinn besta árangur
Meistaramót Íslands í flokkum 11 -14 ára var haldið í Reykjavík helgina 14-15. júní sl. Lið HSK/Selfoss endaði í 5.sæti í heildarstigakeppni mótsins en það var lið ÍR sem sigraði. Flokkur stúlkna 12 ára og 14 ára pilta náðu þriðja sæti í sínum flokkum. Félagar í frjálsíþróttadeild Selfoss stóðu sig vel á mótinu en hæst bar árangur Magnúsar Tryggva Birgissonar en hann varð þrefaldur Íslandsmeistari.
12 ára flokkur: Hilmir Dreki Guðmundsson varð Íslandsmeistari í kúluvarpi er hann bætti sig og kastaði 7,42m en auk þess náði hann bronsverðlaunum í langstökki með 4,07m löngu stökki. Bjarkey Sigurðardóttir varð í öðru sæti í fjölþrautinni en auk þess náði hún silfurverðlaunum bæði í spjótkasti er hún bætti sig og kastaði 17,44m og er hún vippaði sér yfir 1,22m í hástökki.
13 ára flokkur: Kristján Karl Gunnarsson varð Íslandsmeistari í spjótkasti þegar hann bætti sinn besta árangur með 34,30m löngu kasti og félagi hans Andri Fannar Smárason vann til silfurverðlauna í sömu grein með 30,95m löngu kasti. Þeir Kristján Karl og Andri Fannar voru í sveit HSK/Selfoss í 4x100m boðhlaupi sem vann til bronsverðlauna á tímanum 1:02,60 mín. Sigríður Elva Jónsdóttir vann til bronsverðlauna með því að stökkva 4,50m í langstökki og í 80m grindahlaupi er hún bætti sig og kom í mark á tímanum 15,40 sek.
14 ára flokkur: Magnús Tryggvi Birgisson varð þrefaldur Íslandsmeistari. Hann stökk lengst allra í þrístökki með 11,67 m löngu stökki og hann bætti sig í bæði kringlu og spjóti og sigraði í báðum þeim greinum. Spjótinu kastaði hann 39,16m sem er stórbæting og kringlunni 37,19 m. Hann stökk 5,12m í langstökki og vann til silfurverðlauna og að lokum vann hann tvenn bronsverðlaun. Hann bætti sig í kúlu er hann varpaði henni 10,04 m og 2000 m hljóp hann á 8:47,83 mín. Ásta Kristín Ólafsdóttir varð Íslandsmeistari með risakasti í spjótkasti en hún rauf 40m múrinn og kastaði 40,03 m.

Ásta Kristín Íslandsmeistari í spjótkasti í flokki 14 ára

Sigríður Elva á verðlaunapallí í langstökki í flokki 13 ára

11-13 ára keppendur HSK/Selfoss

Boðhlaupssveit HSK/Selfoss vann til bronsverðlauna

Magnús Tryggvi, Kristján Karl og Ásta Kristín urðu öll Íslandsmeistarar um helgina