Brian Jörgensen motocrossþjálfari og fyrrum atvinnumaður í motocross kom til Íslands á dögunum og hélt námskeið fyrir iðkenndur UMFS í samstarfi við Vélhjólaklúbbinn VÍK. Rúmlega 25 iðkendur tóku þátt í námskeiðinu, sem var vel heppnað. Á námskeiðið var opið öllum og var gaman að sjá hvað margir nýliðar í sportinu nýttu sér að fá heimsklássa þjálfun, en Brian þjálfar bæði landslið og marga bestu atvinnumenn í evrópu í motocross og er því frábært að fá hann til að koma og þjálfa hjá okkur aftur á Selfossi.
Brian er svo væntanlegur aftur til landsins til að taka þátt í Route 1 - hringferð í kringum landið sem hefst 4. júlí næstkomandi