Ný stjórn hjá Frjálsíþróttadeild

Ný stjórn Frjálsíþróttadeildar. Frá vinsti: Elvar Atli, Hanna Dóra, Guðrún Ása, Þuríður, Hjalti Jón, Vigfús Þór og Ársæll Einar.
Ný stjórn Frjálsíþróttadeildar. Frá vinsti: Elvar Atli, Hanna Dóra, Guðrún Ása, Þuríður, Hjalti Jón, Vigfús Þór og Ársæll Einar.

Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar fór fram í Selinu þriðjudagskvöldið 3.mars kl. 19.30

Á fundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf og einnig voru iðkendum veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur.

Á fundinum voru þeim Helga Haraldssyni og Sigríðri Önnu Guðjónsdóttir færðar þakkir fyrir áratugalöng störf fyrir deildina. En Sigríður Anna lét af störfum sem starfsmaður deildarinnar eftir margra ára starf og Helgi gekk úr stjórn hennar. Helgi hefur verið gjaldkeri í stjórn deildarinnar undanfarin ár og var formaður hennar í um 25 ár þar á undan.

Verðlaunahafar deildarinnar. Frá vinstri: Kristján Karl, Magnús Tryggvi, Guðmundur, Hjálmar Vilhelm, Kolmar Ingi, Ásta Kristín og Anna Metta.

Sigríði og Helga þakkað fyrir áratugalöng störf fyrir deildina.