Aðalfundur Knattspyrnudeildar Umf.Selfoss, var haldinn 29.mars sl. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf, ásamt yfirferð á starfi deildarinnar á sl. ári og þessu ári. Hugur var í fundarmönnum um starf deildarinnar og framtíðina. Á fundinum var kosin ný stjórn deildarinnar, en hana skipa:
Jón Steindór Sveinsson, formaður.
Eiríkur Steinn Búason, gjaldkeri.
Guðjón Bjarni Hálfdánarson, ritari og varaformaður.
Atli Marel Vokes, meðstjórnandi.
Harpa Íshólm Ólafsdóttir, meðstjórnandi.
Telma Österby, varamaður í stjórn.