Richard Sæþór Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss. Richard er rétthentur hornamaður og uppalinn Selfyssingur. Hann hefur verið mikilvægur hluti af liðinu í vetur og er því kærkomið að hann hafi ákveðið að framlengja samning sinn.