Sara Dröfn Richardsdóttir hefur samið við handknattleiksdeild Umf. Selfos til þriggja ára.
Sara Dröfn er hægri hornamaður sem kemur til Selfoss frá uppeldisfélagi sínu ÍBV. Þar hefur hún verið fastamaður í meistaraflokki í þrjú ár þrátt fyrir ungan aldur. Þá hefur Sara hefur verið í öllum yngri landsliðum Íslands.
Við fögnum því að þessi öflugi leikmaður velji að taka þátt í uppbyggingu kvennahandboltans á Selfossi og bjóðum Söru Dröfn hjartanlega velkomna.