Selfyssingar í Færeyjum

Frá vinstri: Gabríel Fannar Ólafsson (U15), Sveinn Ísak Hauksson (U16), Ólafur Eldur Ólafsson (U15), Kári Einarsson (U16), Sölvi Berg Auðunsson (U15) og Daníel Hilmar Hilmarsson (U15)
Frá vinstri: Gabríel Fannar Ólafsson (U15), Sveinn Ísak Hauksson (U16), Ólafur Eldur Ólafsson (U15), Kári Einarsson (U16), Sölvi Berg Auðunsson (U15) og Daníel Hilmar Hilmarsson (U15)

Um síðastliðna helgi fóru U16 og U15 ára landslið Íslands til Færeyja til að leika við heimamenn í æfingaleikjum. Áttum við Selfyssingar þar sex fulltrúa. Í U16 ára landsliðinu voru Kári Einarsson og Sveinn Ísak Hauksson og í U15 ára landsliðinu voru þeir Daníel Hilmar Hilmarsson, Gabríel Fannar Ólafsson, Ólafur Eldur Ólafsson og Sölvi Berg Auðunsson.

Liðin léku tvo leiki hvort og vann Ísland báða leikina í hvorum aldursflokk. Fyrri leikurinn hjá U16 fór 31-24 og síðari leikurinn vannst 31-26. Fyrri leikurinn hjá U15 fór 30-28 og síðari leikurinn 31-24.

Stór hópur foreldra fylgdi strákunum til að sjá þá leika sína fyrstu landsleiki.

Óskum við strákunum til hamingju með fyrstu landsleikina og gaman verður að fylgjast með þeim í framtíðinni bæði með landsliðinu og Selfoss.