Selfoss tapaði 2-1 þegar liðið sótti Gróttu heim á Seltjarnarnesið í Lengjudeildinni á föstudag.
Það var Kenan Turudija sem skoraði mark Selfyssinga úr vítaspyrnu á 61. mínútu og minnkaði muninn í 2-1.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is
Selfyssingar sitja sem fyrr í 10. sæti deildarinnar með tólf stig. Næsti leikur liðsins er gegn Grindavík á heimavelli föstudaginn 13. ágúst, kl. 18:00.