Mótanefnd HSÍ hefur gefið út frumdrög af úrvalsdeildum karla og kvenna fyrir komandi keppnistímabil.
Strákarnir okkar ríða á vaðið fimmtudaginn 8. september á útivelli gegn Aftureldingu og viku síðar sækja þeir Valsmenn heim. Fyrsti heimaleikur er mánudaginn 19. september þegar strákarnir taka á móti Íslandsmeisturum Hauka.
Stelpurnar okkar hefja hins vegar leik á heimavelli gegn Fram laugardaginn 10. september og sækja Íslandsmeistara Gróttu heim viku síðar.