Dregið var í 8-liða úrslit í Coca Cola bikarnum í hádeginu í dag. Meistaraflokkur karla var fulltrúi okkar Selfyssinga í pottinum, en meistaraflokkur kvenna og frændur vorir í ÍF Mílan féllu úr leik í síðustu umferð.
Strákarnir munu heimsækja Stjörnuna í Garðabæ. Leikurinn mun fara fram í kringum 6. febrúar. Leiktíminn mun skýrast nánar á næstu dögum og munum við auglýsa leikinn vel þegar nær dregur.
Bikardrátturinn í heild leit svona út:
8-liða úrslit Coca Cola bikars karla:
8-liða úrslit Coca Cola bikars kvenna: