Hægri hornamaðurinn Sveinn Aron Sveinsson er genginn til raðir Selfoss. Sveinn, sem er 27 ára gamall, er reynslumikill og hefur verið viðloðandi öll yngri landslið Íslands. Hann er uppalinn á Hlíðarenda en lék einnig með Aftureldingu um skeið.
Handknattleiksdeild Selfoss býður Svein Aron velkominn til Selfoss og ljóst að hann mun verða góð viðbót í hópinn í komandi átökum í Olísdeildinni í vetur.
---
Mynd: Umf. Selfoss / ÁÞG