Þorsteinn Ragnar Guðnason, keppandi Selfoss, gerði góða hluti um helgina á öðru bikarmóti TKÍ í Pomsae (formum).
Hann nældi sér í gullverðlaun í hópaformum með þeim Eyþóri og Halldóri úr Ármanni, hann fékk silfurverðlaun í einstaklingsformum og bronsverðlaun í paraformum með Vigdísi úr Aftureldingu.
Taekwondo deild Selfoss óskar Þorsteini Ragnari til hamingju með þessa flottu frammistöðu!
---
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Tryggvi Rúnarsson og Guðni Ragnarsson.
