Þjálfarar yngri landsliða karla hafa valið æfingahópa fyrir komandi landsliðshelgi sem verður 4. - 11. nóvember. Þar hafa verið valdir nokkrir flottir fulltrúar okkar Selfyssinga. Þar að auki er íþróttastjórinn okkar, Örn Þrastarsson, kominn í þjálfarateymi U-15 ára landsliðs karla.
Í U-17 ára liðinu er Ragnar Hilmarsson. Í U-15 ára liðinu eru þeir Alexander Þórðarson, Guðni Bóas Davíðsson, Kári Einarsson og Sveinn Ísak Hauksson.