Þjálfarar U-19, U-17 og U-15 ára landsliða kvenna hafa valið æfingahópa fyrir komandi landsliðshelgi sem verður 24. – 27. október. Þar eigum við Selfyssingar glæsilega fulltrúa.
Í U-19 ára liðinu eru systurnar Adela Eyrún og Ágústa Tanja Jóhannsdætur sem og Hulda Hrönn Bragadóttir. Í U-17 ára liðinu eru þær Eva lind Tyrfingsdóttir og Inga Dís Axelsdóttir. Í U-15 ára liðinu er svo Hjördís Gauja Kjartansdóttir.