Vetraræfingar hefjast á næstu vikum

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Nú er vetrarstarfið að fara í fullan gang hjá Umf. Selfoss og æfingar að hefjast hjá deildum félagsins.

Æfingar í handbolta hefjast mánudaginn 24. ágúst og liggja æfingatímar fyrir.

Hjá sundfólki 10 ára og eldri hefjast æfingar einnig mánudaginn 24. ágúst. Í taekwondo hefjast æfingar hjá yngri iðkendum miðvikudaginn 26. ágúst og verða á sama tíma og í fyrra. Æfingatímar í sundi og taekwondo verða auglýstir í næstu Dagskrá og á heimasíðu félagsins.

Verið er að ganga frá hópaskiptingu í fimleikum og hefjst æfingar mánudaginn 31. ágúst.

Vetraræfingar júdó verða betur auglýstar í næstu viku.

Þá eru ennþá í gangi sumaræfingar í frjálsum, knattspyrnu og mótokross.