Frístundaakstur í Sveitarfélaginu Árborg

logo_arborg_1641956820
logo_arborg_1641956820

Frístundaakstur hefst innan Sveitarfélagsins Árborgar mánudaginn 3. september í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson ehf.

Frístundabíllinn mun aka alla virka daga frá því um klukkan 13:00-15:30 og hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og frístundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér frístundabílinn og fyrsta árið mun sveitarfélagið ekki innheimta neitt gjald í bílinn. Vakin er athygli á að ekki verður neinn starfsmaður í frístundabílnum en foreldrar eru hvattir til að fara fyrstu ferðina með börnunum sínum til að kenna þeim á aðstæður.

Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða þá eru allar ábendingar vel þegnar en hægt er að senda þær ásamt öðrum fyrirspurnum á netfangið bragi@arborg.is eða hafa samband í síma 480-1900. 

Frístundabíllinn keyrir frá og með 3. september til og með 21. desember samkvæmt tímatöflu og er ekið alla virka daga, þar á meðal merkta frídaga í grunnskólum líkt og vetrarfrí eða aðra starfsdaga.

Um er að ræða tvær akstursleiðir:
Leið 1: Innanbæjar á Selfossi
Leið 2: Eyrarbakka – Stokkseyri – Selfoss

Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Sveitarfélagsins Árborgar.