Þorsteinn Ragnar á landsliðsæfingum

Taekwondo - Þorsteinn Ragnar Guðnason
Taekwondo - Þorsteinn Ragnar Guðnason

Nýlega skipaður landsliðsþjálfari Lisa Lents boðaði úrtökur fyrir landsliðið í formum helgina 9.-11. mars og er gaman að segja frá því að Þorsteinn Ragnar Guðnason, liðsmaður Umf. Selfoss, var valinn í landslið Íslands í unglingaflokki í poomsae (formum).

Taekwondodeild Selfoss óskar Þorsteini Ragnari innilega til hamingju með þennan árangur og hlökkum til að fylgjast með honum á mótum á erlendri grundu.

---

Þorsteinn Ragnar ásamt félögum sínum á úrtaksæfingum fyrir landsliðið í formum.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Tryggvi Rúnarsson