Ásgeir Snær til Selfoss

Ásgeir Snær Vignisson hefur skrifað undir samning við Selfoss og mun leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil.

Ásgeir Snær kemur til Selfoss frá Fjellhamer IL í Noregi þar sem hann hefur leikið frá síðastliðnu sumri. Tímabilið á undan lék hann með OV Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni. Þar áður hafði Ásgeir Snær leikið með ÍBV í tvö tímabil ásamt uppeldisklúbbnum sínum Val.

Ásgeir Snær er 24 ára og leikur sem hægri skytta og getur einnig leikið í hægra horni.

Við bjóðum Ásgeir Snæ hjartanlega velkominn á Selfoss og vonumst til að hann muni styrkja liðið í þeirri baráttu sem framundan er.

Áfram Selfoss!