Skilyrði er að fengið sé frá greiðslu æfingagjalda í upphafi tímabils í gegnum Abler kerfið
2% þjónustugjald leggst á æfingagjöld sem er skipt niður
Hafi ekki verið gengið frá greiðslu æfingagjalda innan 3 vikna verður greiðsluseðill með heildarupphæð sendur í heimabanka.
Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfang framkvæmdastjóra fimleikar@umfs.is, úrsögn tekur gildi frá næstu mánaðarmótum.
Ef úrsögn berst ekki framkvæmdastjóra með tölvupósti verða æfingagjöld áfram innheimt sem nema gjaldi fyrir einum mánuði. Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara verður ekki tekin gild.
Æfingagjaldið miðast við þann æfingatímafjölda sem hópur iðkanda æfir á viku.
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Leyfisgjald FSÍ er innifalið í æfingagjöldum.
Mótagjöld og kostnaður vegna keppnis- og æfingaferða eru ekki innifalin í æfingagjöldunum.
Abler
Samskipti þjálfara við iðkendur og foreldra fara fram í gegnum Abler forritið/appið.
Þar koma fram upplýsingar um æfingar, mót og annað sem tengist starfinu. Einnig er hægt að send skilaboð á þjálfara í forritinu.
Þegar iðkandi er skráður í fimleikadeildina er hann tengdur við Abler. Innskráningarupplýsingar eru sendar í tölvupósti á forráðamann. Óski fólk eftir aðgangi fyrir annan aðila og/eða iðkandann verður að senda beiðni um það á netfangið fimleikar@umfs.is
Vinsamlegast hafið samband við framkvæmdastjóra ef upp koma vandamál á fimleikar@umfs.is
Frístundastyrkur
Hægt er að nota frístundastyrk sveitarfélagsins Árborgar upp í greiðslu á æfingagjöldum hjá þeim sem eru með lögheimili í Árborg.
Nota skal frístundastyrkinn þegar gengið er frá æfingagjöldum við upphaf tímabils á Abler
Frístundastyrkur er ekki endurgreiddur.
Frístundastyrkur er ekki fluttur á milli systkina.
Innheimtuferli
Öll æfingagjöld sem ekki eru greidd á eindaga fara í innheimtu hjá Mótus, það gerist sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu.