Allar æfingar falla niður hjá Umf. Selfoss föstudaginn 14. febrúar

Rauð-viðvörun-696x449
Rauð-viðvörun-696x449

Í ljósi þess að Almannavarnir hafa gefið út rauða veðurviðvörun fyrir Suðurland á morgun falla allar æfingar hjá Umf. Selfoss niður á morgun, föstudaginn 14. febrúar.

Þá hefur Sveitarfélagið Árborg gefið út eftirfarandi tilkynningu

https://www.arborg.is/vekjum-athygli-a/raud-vidvorun-a-sudurlandi-aridandi-tilkynning

Ákveðið hefur verið að loka öllum stofnunum Sveitarfélagsins Árborgar á morgun, föstudaginn 14. febrúar, í ljósi þess að Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi með rauðum veðurviðvörunum á Suðurlandi.

Þetta á m.a. við um allt skólahald, frístunda- og íþróttastarf, gámasvæði, bókasöfn, skrifstofur sveitarfélagsins og félagsþjónustu. Sérstakar ráðstafanir verða þó gerðar vegna heimila með sólarhringsþjónustu.

Íbúar eru hvattir til að huga að lausamunum og gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir mögulegt foktjón. Ef þörf er á verður hugað að snjómokstri þegar veðrið er gengið niður. Íbúar eru hvattir til að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum af veðri.