Við erum stolt að segja frá því að Aníta Þorgerður Tryggvadóttir hefur verið ráðin sem deildarstjóri yngsta stigs hjá okkur. Hún tekur þar við af Þyrí Imsland sem við þökkum í leiðinni fyrir gott starf síðustu ár :)
Aníta er íþróttafræðingur að mennt og hefur verið viðriðin fimleika frá unga aldri. Hún hefur verið þjálfari í yfir 10 ár og hefur meðal annars tekið þátt í mikilvægri fimleikauppbyggingu í mörgum minni félögum á Suðurlandi.
Við hlökkum til komandi veturs og bjóðum Anítu hjartanlega velkomna.