Íslandsbanki aðalstyrktaraðili fimleikadeilar Selfoss

Fimleikar - Íslandsbanki
Fimleikar - Íslandsbanki

Fimleikadeild Selfoss og Íslandsbanki á Selfossi hafa endurnýjað samning sinn um að bankinn sé aðalstyrktaraðili fimleikadeildarinnar. Samningurinn hefur verið virkur í nokkur ár og er það deildinni afar mikilvægt að hafa trausta bakhjarla sem styðja fjárhagslega við starfsemina.

Íþróttafélög þurfa öll á góðum stuðningi að halda og er fimleikadeild Selfoss mjög ánægð með þann góða stuðning sem Íslandsbanki sýnir deildinni árlega.

Myndatexti:

Frá vinstri eru Sigurveig Sigurðardóttir og Hróðný Hanna Hauksdóttir viðskiptastjórar hjá Íslandsbanka og Ingibjörg Garðarsdóttir formaður fimleikadeildar og Elmar Eysteinsson framkvæmdastjóri fimleikadeildar. Þeim til halds og traust voru Sólrún María Jóhannsdóttir (t.v.) og Evelyn Þóra Jósefsdóttir, tveir af fjölmörgum iðkendum deildarinnar.

Ljósmynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson