Jólatilboð Jako

JakosportISL
JakosportISL

Jako sport á Íslandi verður jólatilboð fyrir félagsmenn Umf. Selfoss til 13. desember.

Það verður boðið upp á frábær nettilboð á keppnistreyju Umf. Selfoss, félagsgalla, æfingabúnaði, kuldaúlpum, nýjum vetrar vindjakka, húfum og fleiri vinsælum Selfossvörum sem hægt verður að kaupa fyrir gott verð.

Vinsamlegast athugið að tilboðsvörur á myndinni hér fyrir neðan er ekki tæmandi, mun meira er á tilboðssíðunni fyrir Selfoss. Ef óskað er eftir upplýsingum um meira úrval er einnig hægt að hafa beint samband við Jako í síma 577 7310 eða með tölvupósti í gegnum netfangið jakosport@jakosport.is.

Sendingar verða keyrðar á Selfoss einu sinni í viku og verður hægt að sækja allar sendingar í Tíbrá.

Eins og staðan er í dag er ekki hægt að vera með hefðbundinn tilboðsdag í Tíbrá en ef eitthvað léttir á samkomutakmörkunum verður það endurskoðað eins skjótt og mögulegt er.