Martröð á jólanótt – Jólasýning fimleikadeildar

Fimleikar - Martröð á jólanótt
Fimleikar - Martröð á jólanótt

Árleg jólasýning fimleikadeildar Umf. Selfoss verður haldin nú á laugardag. Þetta er í tófta sinn sem sýningin er þemabundin og undanfarna daga hafa iðkendur og þjálfarar lagt nótt við dag til að bjóða gestum upp á martröð á jólanótt. Eins og alltaf er sýningin hin glæsilegasta og allir iðkendur deildarinnar fá að taka þátt.

Að venju verða þrjár sýningar kl. 9:30, kl. 11:15 og kl. 13.15 og er sýnt í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi.

Vakin er athygli á að gestir ganga inn á sýninguna um inngang á íþróttahúsi en út í gegnum aðalanddyri Vallaskóla þar sem þeim gefst kostur á að gæða sér á kaffi og kruðeríi að sýningu lokinni.

Forsala aðgöngumiða verður í anddyri Vallaskóla á föstudag kl.16-18.