Skráning er hafin fyrir íþróttaskólann

Skráning er hafin fyrir íþróttaskóla barnanna og nú þarf að skrá sig í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni https://selfoss.felog.is/ en ekki á staðnum eins og undanfarin ár.

Hér eru upplýsingar um hvernig skal skrá sig /umfs/almennar-upplysingar/nori-leidbeiningar/.

Íþróttaskólinn byrjar sunnudaginn 3. september  og verður á hverjum sunnudegi til 19. nóvember. Þetta eru tólf skipti fyrir áramót. Íþróttaskólinn er fyrir börn sem fædd eru frá árið 2012 til júní árið 2016.

Kennt er fyrir hádegi í Baulu, íþróttahúsinu í Sunnulækjarskóla.

Kennarar á námskeiðinu eru Berglind Elíasdóttir og Unnur Þórisdóttir.

Ef þú lendir í vandræðum með skráningu eða vantar upplýsingar getur þú haft samband á fimleikar@umfs.is.