Skráning í fimleika á haustönn er hafin inná vefnum selfoss.felog.is Skráningarfrestur er til 24. ágúst en eftir það verða börn tekin inn á biðlista ef fullt er inní hópana. Hægt er að skrá börn í fimleika sem fædd eru árið 2009 og fyrr. Skráning í íþróttaskóla 2-4 ára verður auglýst þegar nær dregur hausti. Nánari upplýsingar má fá hjá olgu á netfanginu fimleikarselfoss@simnet.is