Miðvikudaginn 1. júlí verður Jako með sumartilboð fyrir félagsmenn Umf. Selfoss í Tíbrá að Engjavegi 50 milli klukkan 17 og 19.
Það verður boðið upp á frábær sumartilboð á félagsgalla Umf. Selfoss, innanundirfatnaði, æfingabúnaði, hlifðarfatnaði og fleiri vörum sem hægt verður að kaupa fyrir gott verð. Vinsamlegast athugið að tilboðin gilda einungis þennan eina dag.
Fatnaður verður afhentur í júlí.
Allir velkomnir!
