Tveir Selfyssingar eru í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í Norður-Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Þrándheimi í Noregi helgina 22. - 23. október.
Í karlalandsliðinu er Matin Bjarni Guðmundsson sem æfir með Gerplu og í kvennalandsliðinu er Katharína Sybila Jóhannsdóttir sem æfir með Fylki.
Við óskum keppendum, félögum og forráðamönnum innilega til hamingju og sendum óskir um gott gengi í Noregi.