Fimmtudaginn 31. október verður Jako með vetrartilboð fyrir félagsmenn Umf. Selfoss í Tíbrá að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19.
Það verður boðið upp á frábær vetrartilboð á keppnistreyju Umf. Selfoss, félagsgalla, æfingabúnaði, hlaupabuxum, kuldaúlpum og fleiri vörum sem hægt verður að kaupa fyrir gott verð. Vinsamlegast athugið að tilboðin gilda einungis þennan eina dag.
Allir velkomnir!
