Grunnhóparnir eru ætlaðir börnum á aldrinum 4–8 ára sem vilja kynnast heimi fimleika á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Áhersla er lögð á að börnin njóti sín í hreyfingu, upplifi gleði og öðlist jákvæða reynslu af íþróttaiðkun.
Í æfingunum vinna iðkendur að því að efla samhæfingu, jafnvægi, styrk, liðleika og líkamsvitund í gegnum fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar. Jafnframt læra þau grunnatriði fimleika sem leggja mikilvægan grunn að áframhaldandi þátttöku í íþróttum og hreyfingu.
Við leggjum áherslu á öruggt, hvetjandi og jákvætt umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að þroskast á sínum eigin forsendum, eignast nýja vini og byggja upp sjálfstraust í gegnum leik og hreyfingu.
Iðkendur mæta í þægilegum æfingafötum og með sítt hár bundið frá andliti. Ekki er þörf á sérstökum búnaði.
Skráning er nauðsynleg.
Hópar sem falla undir grunnhópa:
Kríli
G - hópur
F - hópur
FG/kk.