21.Grunnskólamót Árborgar 28.maí

402262_310387075674514_885749744_n
402262_310387075674514_885749744_n

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 21.sinn þriðjudaginn 28.mai 2019. Keppnin fer fram á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.

Klukkan 16:30 hefst keppni í 1.- 2.bekk, klukkan 17:15 hefst keppni í 3.-4.bekk. Spjótkast hjá strákum í 7.-10.bekk hefst klukkan 16:30 og spjótast hjá stelpum í 7.-10.bekk hefst klukkan 17:15. Keppni í spretthlaupi, kúluvarpi og langstökki hjá 5.-10.bekk hefst klukkan 18:00.

Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum:
1.- 2. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)
3.- 4. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg)
5.- 6. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg/3kg)
7.- 8. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp(3kg/4kg) og spjótkast (400gr/600gr)
9.-10. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp (3kg/5kg) og spjótkast (600gr/700gr)

Allir í 1.- 4. bekk fá þátttökuverðlaun en veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 5.- 10. bekk.

Hver keppandi í 1.- 4. bekk fær 2 tilraunir bæði í langstökki og kúluvarpi. Í 5.-10. bekk fær hver keppandi 3 tilraunir í kúluvarpi og langstökki auk þess sem keppendur í spjótkasti fá 3 tilraunir.
Keppendur í 1.-4.bekk skrá sig á staðnum, en keppendur í 5.-10.bekk þurfa að skrá sig minnst tveimur dögum fyrir keppni.

Skráningum skal skila eigi síðar en sunnudaginn 27.mai á netfangið frjalsar@umfs.iseða til íþróttakennara/ritara
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í símum 482-3182 / 892-7052 eða á netfanginu frjalsar@umfs.is