Ævintýri á EuroGym

Fimleikar - EuroGym 2018 (1)
Fimleikar - EuroGym 2018 (1)

Dagana 14.-20. júlí dvöldu 24 fimleikastelpur úr fimleikadeild Selfoss ásamt þjálfurum og fararstjórum í Liége í Belgíu þar sem þau tóku þátt í EuroGym fimleikahátiðinni, en um 4.000 börn og ungmenni víðsvegar úr Evrópu voru á hátíðinni í ár.

Á hátíðinni tóku stelpurnar þátt í vinnubúðum og götusýningum, fengu tækifæri til að sýna sig og sjá aðra. Þær fengu auk þess að taka þátt í að kynna EuroGym 2020, sem haldið verður í Reykjavík, með lokaatriði á lokahátíðinni sjálfri.

Ferðin var vel heppnuð og skemmtileg, ógleymanlegt ævintýri fyrir þessar flottu fimleikastelpur.