Ásdís Þóra er komin á Selfoss

Ásdís Þóra er búin að vera að kortleggja parketið í Set höllinni
Ásdís Þóra er búin að vera að kortleggja parketið í Set höllinni

Ásdís Þóra Ágústsdóttir hefur skrifað undir árs samning við handknattleiksdeild Selfoss.

Ásdís Þóra kemur á láni frá uppeldisfélaginu sínu Val, en síðasta vetur var hún á mála hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Lugi í Lundi. Þessi ungi en öflugi leikstjórnandi kemur með reynslu úr Olísdeildinni, en Ásdís var komin með töluvert hlutverk í sterku liði Vals áður en hún hélt til Svíþjóðar. Þá hefur Ásdís leikið stórt hlutverk með yngri landsliðum Íslands.

Það er virkilega gleðilegt að fá Ásdísi Þóru inn í hópinn. Bæði smellpassar hún í liðið sem og í þennan unga og spennandi leikmannhópi.